Störf þingsins.
Frú forseti. Það er áhugaverð grein í í Morgunblaði dagsins. Hún birtist okkur undir fyrirsögninni „Bílasalar í sæti lögreglumanns“. Undirfyrirsagnirnar eru: „Gullhúðun Evrópusambandsreglna“, „Mun harðari reglur hér á landi en í löndum Evrópusambandsins“, „Skatturinn sektar bílasölur“. Þar er fullyrt að Skatturinn treysti ekki eigin utanumhaldi og eftirlit sagt leika lausum hala.
Mig langar, með leyfi forseta, að grípa örstutt niður í þessa grein því að hún fjallar um málefni sem ég hef ítrekað gert að umræðuefni hér í þessum sal. Þar segir, með leyfi forseta:
„Bílaumboð og bílasalar hafa þurft lögum samkvæmt að halda úti innra regluverki, ferlum og tölvukerfum sem hafa þann tilgang að tryggja að þeir þekki sína viðskiptavini. Hefur þetta regluverk verið í gildi frá árinu 2021.“
Þá segir síðar í greininni, með leyfi frú forseta, því að ég sé að ég hef ekki nægan tíma til að dekka þetta nógu vel:
„Er á það bent að þótt þetta regluverk sé afleiðing innleiðingar ESB-tilskipunar um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, þá kannist viðskiptaaðilar bílaumboða í Evrópu ekki við að slíkar kröfur séu gerðar þar í álfu og furða sig jafnframt á að þetta skuli gert hér á landi.“
Frú forseti. Ég hef ítrekað komið inn á þetta, reyndar með annarri nálgun. Þá hef ég verið að fjalla um aðstandendur þeirra sem kjósa að skipta sér af pólitík, til að mynda okkar sem störfum hér inni. Börnin okkar, systkini okkar, foreldrar, þau lenda á skrá og við getum rétt ímyndað okkur hvort það sé einhver sanngirni í því að þó að við kjósum að tjá okkur hér í þessum sal, að til að mynda barn sem við eigum sem sækir framhaldsnám erlendis, til að mynda á Englandi, skuli lenda í vandræðum með að opna bankareikning vegna mögulegra tengsla við hryðjuverk og peningaþvætti.
Frú forseti. Við þurfum að vinda ofan af þessu.