Störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar að ræða hér um einstakt verkefni sem kallast vinalestur Heiðrúnar. Þetta er tilraunaverkefni Heiðrúnar Kristínar Guðvarðardóttur, tómstunda- og félagsmálafræðings, um lestur bóka á íslensku með börnum úr hópi innflytjenda. Verkefnið hófst árið 2017 þegar Heiðrún byrjaði fyrst að lesa íslenskar bækur með börnum innflytjenda eftir að Rauði krossinn og Borgarleikhúsið auglýstu eftir sjálfboðaliðum í verkefni sem kallast lestrarvinir. Verkefnið vatt upp á sig og undanfarin þrjú ár hafa á þriðja tug barna mætt í lesturinn. Vinalesturinn tók þátt í barnamenningarhátíð í síðasta mánuði með sýningu í Fella- og Hólakirkju og útgáfu bókarinnar Lífið við Leiksgötu. Markmiðið er að efla íslenskuskilning barna og auðvelda þeim jafnframt lífið í íslensku samfélagi. Verkefnið er unnið með stuðningi frá Reykjavíkurborg og í samstarfi við suðurmiðstöð, Borgarbókasafnið Gerðubergi og nú síðast einnig í samstarfi við Fella- og Hólakirkju.
Börnin hafa einnig farið í ferðir, m.a. í leikhús, á tónleika og söfn. Í vetur fór hópurinn ásamt fjölskyldum sínum að sjá Línu langsokk í Þjóðleikhúsinu. Á sýningunni í Fella- og Hólakirkju mátti sjá afrakstur af föndurverkefni barnanna. Þau bjuggu til líkan af litlu þorpi, götu með húsum í kring. Húsin tengjast hvert fyrir sig upprunalandi barnanna en gatan stendur fyrir hinar nýju heimaslóðir þeirra á Íslandi. Þessi gata er jafnframt sögusvið bókarinnar Lífið við Leiksgötu. Vonandi fær þetta verkefni stuðning áfram. Það skiptir máli að börnin hafi einhvern til að lesa íslensku með. Lesið er til skiptis þannig að börnin heyra mismunandi framburð. Með því að efna til sýninga, búa til sögur og fara í leikhúsferðir tengja börnin tungumálið við íslenskt samfélag. Ástæðan fyrir því að ég vil nefna þetta hér er að mér finnst við þurfa að vera vakandi fyrir öllum þeim fjölmörgu jákvæðu verkefnum og atburðum sem eru í samfélagi okkar og vekja á þeim verðskuldaða athygli.