Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú er rétt rúmlega eitt ár frá því að ríkisstjórnin tók við völdum. Á þeim tíma hefur verið ráðist í hagræðingu, halli ríkissjóðs hefur verið helmingaður, skuldir hafa lækkað, traust erlendra matsaðila hefur aukist og lögð hefur verið fram fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir hallalausum fjárlögum út kjörtímabilið. Þetta skiptir máli því að við vitum að sterk staða ríkissjóðs er undirstaða velferðar á Íslandi og getu þjóðarinnar til að takast á við áföll. Nú glímir efnahagskerfi heimsins við áskoranir vegna lokunar Hormússunds og skerts framboðs á olíu með tilheyrandi hækkun á olíuverði. Ríkisstjórnin brást við þessari stöðu með lækkun virðisaukaskatts á bensíni til að milda höggið. Samkvæmt greiningu Seðlabankans er hækkun olíuverðs þrátt fyrir það ein helsta ástæða verðbólgu á Íslandi. Þessar verðhækkanir hafa áhrif út um allan heim en íslensk heimili fá ekki bara eitt högg heldur þrjú vegna okkar verðtryggða krónuhagkerfis. Fyrsta höggið er þegar eldsneytið hækkar og dýrara verður að fylla á tankinn. Annað höggið er þegar hækkað verð mælist í vísitölunni sem hækkar verðtryggð lán heimilanna. Þriðja höggið dynur svo á heimilunum þegar Seðlabankinn hækkar stýrivexti til að sporna gegn frekari verðbólgu. Þetta er hin þrefalda svipa verðtryggðrar krónu á Íslandi. Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum og íslenskum almenningi er refsað með þremur svipuhöggum.
Virðulegur forseti. Þarf þetta virkilega að vera svona?