157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

Störf þingsins.

[10:51]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Á málþingi Íslenskrar málnefndar um daginn var farið yfir rannsókn Sigríðar Ólafsdóttur læsisfræðings þar sem 1.500 nemendur tóku þátt. Þar kom fram, eins og undirritaður hefur margoft bent á, og vitnað var í skýrslu OECD frá 2025, að árangur Íslands hvað lesskilning varðar ógni langtímaframleiðni og velferð landsmanna. Í skýrslu OECD kom fram að ábyrgð á skólakerfinu sé óljós og eftirfylgd takmörkuð. Einnig var bent á, eins og undirritaður hefur margoft gert, að hér þurfi að efla grunninn, efla svokallaðar kjarnagreinar og koma á samræmdum prófum þar sem öll viðmið aðalnámskrár eru undir en ekki bara sum eins og í matsferli. Mesta hrunið var á milli áranna 2018 og 2022 samkvæmt OECD þegar tvö heil skólaár töpuðust eða 40 PISA-stig. Það er athyglisvert að skoða þessar tölur í ljósi þess að íslenskir skólar voru mest opnir allra skóla í heiminum á meðan á Covid-faraldrinum stóð. Mest opnir, fallið mest, tvö ár af íslenskum nemendum. Frá aldamótum hafa íslenskir nemendur tapað þremur og hálfu skólaári samkvæmt OECD. Í samtali við Morgunblaðið sagði áðurnefnd Sigríður læsisfræðingur: „Við þurfum að horfast í augu við það að einn þriðji af nemendum í tíunda bekk er enn þá að basla við bókstafina — það er algerlega óásættanlegt.“ En staðan er ekki bara ógn við lýðræði og efnahag. Hún er ógn við okkur Íslendinga sem þjóð. Það er tungumálið sem bindur okkur saman. Þetta er löngu komið gott. Setjum framtíðina í fyrsta sæti.