157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

Störf þingsins.

[10:58]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson kom hér upp í ræðu áðan og fór mikinn um hvað þau stóru fyrirtæki á Íslandi sem væru gerð upp í evrum væru í raun heppin, en öll minni og meðalstór fyrirtæki ekki af því að þau gætu ekki gert upp í evrum. Þetta er eins og mestallt annað í þessari umræðu um Evrópusambandið. Hvað halda hv. þingmenn? Að þau búi þá í einhverri paradís og þurfi ekki að borga skatta? Nei, þau borga nákvæmlega sömu skatta og allir aðrir hér, sömu skatta og þessi ríkisstjórn er búin að setja yfir þessi sömu fyrirtæki, hvort sem þau gera upp í evrum eða íslenskum krónum. Ef þau eru með skattalega heimilisfesti hér þá búa þau við skatta þessarar ríkisstjórnar.

Svo kom hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson og spurði: Þarf þetta að vera svona, efnahagsástandið? Nei, þetta þarf ekki að vera svona eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson fór svo vel yfir. Hæstv. ríkisstjórn lofaði því að taka til, hækka ekki skatta og negla niður vexti og verðbólgu. Hvað hefur hún gert? Hún hefur hækkað skatta, hún er ekki að taka til, hún hefur eytt meira en nokkur önnur ríkisstjórn hefur gert fyrr og síðar. Hve mikið? Hún jók útgjöld ríkissjóðs um 143 milljarða. Og hvað á að gera núna? Kenna öllum öðrum um. Utanaðkomandi aðstæður — jú, það er það eina sem þessi ríkisstjórn hefur brugðist við, það eru utanaðkomandi aðstæður. Hún hefur ekki brugðist við eigin mistökum í að skattleggja allt of mikið. Hún hefur ekki brugðist við því, nema: Hvað ætlar hún að gera? Hún ætlar að halda áfram að hækka skatta á fólk og fyrirtæki, almenning í þessu landi. Það eru viðbrögð þessarar ríkisstjórnar. Og nei, þetta þarf alls ekki að vera svona. Við þurfum bara nýja ríkisstjórn.