Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Allir landsmenn eiga að geta treyst á skjót viðbrögð þegar alvarleg slys eða neyðartilvik verða, óháð því hvar þeir búa. Samt er staðan sú að allar þyrlur Landhelgisgæslunnar eru staðsettar á suðvesturhorninu og á meðan er gríðarlega stórt landsvæði á Norður- og Austurlandi sem býr við lengri viðbragðstíma þegar alvarleg slys eða neyðartilvik verða. Þess vegna er mikilvægt að ræða af fullri alvöru um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Ég vil vekja athygli á því að fyrr í vetur var lögð fram mikilvæg þingsályktunartillaga á Alþingi þar sem sérstaklega var kallað eftir því að ein af þyrlum Gæslunnar yrði staðsett á Akureyri. Þaðan er hægt að bregðast hraðar við slysum á hafi, á þjóðvegum, á hálendinu og í dreifðum byggðum Norður- og Austurlands. Við vitum að mínútur skipta máli þegar mannslíf eru í húfi. Í sjúkraflugi og björgunaraðgerðum getur styttri viðbragðstími ráðið úrslitum um líf eða dauða. Það er óumdeilt að á Akureyri eru til staðar mikilvægir innviðir. Þar er öflugur flugvöllur, reynsla af sjúkraflugi og sérhæft heilbrigðisstarfsfólk sem gæti stutt við starfsemina. Þá hafa bæði sveitarfélög og heilbrigðisyfirvöld lýsti yfir stuðningi við hugmyndina.
Virðulegi forseti. Það er líka mikilvægt að horfa til þess sem kemur fram í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landhelgisgæsluna. Þar hefur verið bent á mikilvægi þess að tryggja viðbúnaðargetu stofnunarinnar til lengri tíma og að geta hennar til leitar og björgunar verði ekki skert. En, virðulegi forseti, nú er komið að því að stíga næsta skref. Nú er tímabært að ráðast í raunhæft og faglegt mat á kostnaðinum við að koma upp þyrlu og áhöfn á Akureyri. Of lengi hefur umræðan staðið í eins konar biðstöðu þar sem er sagt að það vanti útreikninga eða skýrari forsendur áður en það sé hægt að taka ákvörðun. En á einhverjum tímapunkti verðum við að spyrja hvort komi á undan, eggið eða hænan. Ef það er aldrei ráðist í faglegt kostnaðarmat eða undirbúning verður heldur aldrei hægt að taka upplýsta ákvörðun um verkefnið.
Virðulegi forseti. Við eigum ekki að bíða eftir stórslysi til að átta okkur á því að hjálpin þarf að geta borist hraðar til fólks hvar sem það býr. (Forseti hringir.) Þyrla Landhelgisgæslunnar á Akureyri væri fjárfesting í öryggi og jafnræði landsmanna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)