157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[11:07]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við samþykkt þessa frumvarps hafa menn víða, einkum í Skagafirði, miklar áhyggjur af afdrifum Háskólans á Hólum og starfseminnar þar. Þetta er auðvitað einn af sögufrægum stöðum landsins í margvíslegu tilliti og með þessu eru stigin, að því er menn telja í héraði, ákveðin skref í átt að því að einhverju því ástandi sem getur ógnað tilvist skólans. Þótt þetta fari með þessu inn í þessa háskólasamstæðu og það séu nú ýmsar leiðir sem eiga að tryggja sjálfstæði skólans til lengri tíma, þá telja margir að þarna hræði sporin. Ég get ekki stutt þetta mál í bili en væri áhugasamur um að óska þess að þetta færi til hv. allsherjarnefndar á milli atkvæðagreiðslna og umræðna. Þar erum við með sömuleiðis mál til skoðunar sem varðar húsnæðismálin á Hólum sem sannarlega tengjast þessum breytingum vegna þess að þar stendur til líklega að selja skólabyggingarnar. (Forseti hringir.) Þarna eru veigamiklar grundvallarbreytingar sem menn hafa miklar áhyggjur af og þarf að skoða vel.