157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[11:10]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er um umdeilt mál að ræða fyrir Norðlendinga, enda er hér um sögufrægan stað og fræðasetur að ræða. Sporin hræða vissulega hvað varðar aðrar sameiningar, þegar skólar hafa farið inn í háskólasamstæður, ég vil nefna háskólann á Laugarvatni. Ég tel engu að síður að ef staðið verður við þau fyrirheit sem gefin hafa verið þá geti þetta verið til framfara, þ.e. að það verði strax farið í uppbyggingu á fiskeldisbraut og þeim nýbyggingum þannig að þegar upp er staðið muni sú starfsemi sem fram fer í Skagafirði eflast. En það skiptir afar miklu máli, tel ég, fyrir framtíðaráform og fyrir landsbyggðina að það verði staðið við þau fyrirheit sem hafa verið gefin í þessu máli. Mér finnst það skipta afar miklu máli. Að því sögðu, að það verði staðið við þau, tel ég þetta geta verið heillaspor fyrir Norðurland.