opinberir háskólar.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp bara til að lýsa yfir stuðningi Samfylkingar við þetta góða mál. Hér er frumvarp sem veitir háskólum heimild til að stofna háskólasamstæður kjósi þeir að gera svo. Í þessu dæmi sem hefur mest verið rætt um hér er fjallað um Háskólann á Hólum þar sem Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands hafa haft frumkvæði að því að vilja stofna sameiginlega háskólasamstæðu. Geri þau það mun vera stofnað svokallað samstarfsráð sem kveðið er á um í þessu frumvarpi. Það samstarfsráð er skipað fulltrúum frá báðum skólum sem mun einmitt fara með allar stærri ákvarðanir sem snúa að skólasamstæðunni. Þetta er algjört lykilatriði sem er verið að lögfesta í þessu frumvarpi og var einmitt ekki til staðar í sameiningum líkt og vísað var til varðandi Laugarvatn og aðra þætti þar sem skólarnir sem voru staðsettir á Laugarvatni höfðu ekkert um það að segja hvað yrði um framtíð skólanna eftir að þeir runnu inn í Háskóla Íslands. Hér erum við að gefa skólum heimild til að stofna samstæður. (Forseti hringir.) Valdheimildirnar eru enn þá í samstæðuskólunum varðandi allt sem snýr að framtíð skólanna. Við þurfum ekki að óttast það að t.d. Háskólinn á Hólum muni fara (Forseti hringir.) frá Hólum eða úr Skagafirði nema það sé ákvörðun háskólans sjálfs, sem ég sé ekki í kortunum, enda fylgir þessu og í frumvarpinu (Forseti hringir.) fjárfesting í húsnæði og að festa bæði námið á húsnæðiskosti í sessi í Skagafirði.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)