opinberir háskólar.
Frú forseti. Það er alls ekki að ástæðulausu sem hver þingmaðurinn á fætur öðrum stígur hér í pontu núna og notar sama frasann, sem er að sporin hræði. Fyrir því hafa verið rakin og talin til nokkur rök og því ekki óeðlilegt að íbúar á landsbyggðinni óttist slíkar breytingar. Hér hefur Laugarvatn verið nefnt og mætti tilgreina fleiri staði. Í gegnum tíðina, og í gegnum áratugina, hefur Hólaskóli staðið sig ótrúlega vel í að búa til nýjar faggreinar. Þar fer fram nám í fiskeldi, hestafræði og að ég hygg leiðsögn. Nú nýlega undir styrkri leiðsögn járningarmeistara er hafið í fyrsta skipti í góðri aðstöðu metnaðarfullt nám í járningum. Allt sem ógnar tilvist slíkrar þróunar er auðvitað eitthvað sem hræðir okkur á landsbyggðinni því að við erum ekki að fara í gegnum svona umræðu í fyrsta skipti. Vissulega eru settar einhverjar girðingar en við óttumst einfaldlega að þær muni ekki halda. (Forseti hringir.) Sagan segir okkur að girðingarnar sem hér eru settar trekk í trekk halda ekki þegar á hólminn er komið.