157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[11:17]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum 380.000 manna þjóð sem er í opinni samkeppni við umheiminn. Við þurfum einfaldlega að styrkja háskólakerfið okkar þannig að það geti staðist samkeppni við erlenda háskóla. Þess vegna er hér um að ræða löggjöf, þó að hún snúi að vissu leyti um Hóla líka, sem með almennum hætti mun greiða fyrir því að skólar geti í auknum mæli unnið saman og það er nauðsynlegt. Hér hafa margir talað um að sporin hræði en við megum ekki vera svo hrædd að við þorum ekki að stíga inn í framtíð sem er kvik og óútreiknanleg. Það má heldur ekki gleyma því að frumkvæðið að þessari samvinnu kemur frá Háskólanum á Hólum og Háskóla Íslands með stuðningi sveitarfélagsins sjálfs. Við áttum okkur á því að þetta er mikilvægur staður. Við munum auðvitað standa vörð um Hóla á allan hátt en þetta er framfaraskref og þetta getur lagt grunninn að frekari styrkingu háskólakerfisins á Íslandi.