157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[11:27]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það góða við þetta mál, og það hefur komið fram, var að það dró fram það sem kannski ekki margir vissu; að það er verulegt misræmi við fullnustu refsinga útlendinga og Íslendinga nú þegar með vísan til framkvæmdar sem hefur verið ógagnsæ, óskýr og í einhverjum tilfellum kannski ekki endilega bundin í lög. Þetta lagafrumvarp miðar að því að festa það enn frekar í sessi að fullnusta refsinga gagnvart útlendingum verður vægari en gagnvart Íslendingum. Það er varasamt, jafnvel þó að það sé gert hér og lagt til sem tímabundið átak til að mæta vanda í refsivörslukerfinu, yfirfullum fangelsum. Miðflokkurinn leggur áherslu á það að þessum vanda er varðar yfirfull fangelsi af útlendingum þurfi að mæta fyrst og fremst á landamærunum en eftir atvikum með verulegri endurskoðun á hegningarlögum. Sú leið sem er hér farin er til þess fallin að mynda ákveðna segla (Forseti hringir.) fyrir skipulagða glæpastarfsemi og erlenda glæpamenn. Miðflokkurinn mun sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.