157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[11:30]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Samfylkingin styður þetta mál og mun styðja það í atkvæðagreiðslunni. Það sem er mjög mikilvægt að komi fram í þessu er að þegar þessum ákvæðum er beitt þá fylgi þeim brottvísun með endurkomubanni, sem er mjög mikilvægur þáttur í þessu máli. En eins og komið hefur hér fram er full ástæða til að fara yfir þessa framkvæmd í heild sinni í kjölfarið á þessu. Þetta er tímabundið úrræði en það er mikilvægt að halda því til haga að erlendir glæpamenn sem hingað hafa komið sem hluti af skipulagðri glæpastarfsemi — að þeim verði þá vísað úr landi með endurkomubanni inn á Schengen-svæðið.