157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

fullnusta refsinga.

514. mál
[11:32]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Staðan í íslenskum fangelsum er auðvitað grafalvarleg og maður heyrir dæmi af því að menn, ja, endi á því að afplána aldrei dóma í mörgum tilvikum, sem manni blöskrar eiginlega við að heyra. Þannig að hæstv. dómsmálaráðherra er vitaskuld mikill vandi á höndum að greiða úr þessu með einhverjum hætti. Hér er valin þessi leið, þetta mikla óyndisúrræði í raun og veru, að létta þá á afplánun þeirra sem þó hafa sannarlega unnið sér inn fyrir henni. Við leggjumst ekki gegn þessu máli. Það er kveðið á um að þetta sé sannarlega tímabundið og það kom fram í máli hæstv. ráðherra hér í umræðum að það þyrfti sérstakt frumvarp til að halda þessu áfram. Þannig að þetta er ekki eitthvað sem framlengist af sjálfu sér heldur er þetta tímabundið, eins og ég segi, óyndisúrræði. En það breytir því ekki að maður tekur heils hugar undir það sem kemur fram í máli annarra hv. þingmanna, að grundvallarendurskoðunar er augljóslega þörf á fullnustukerfinu, fangelsiskerfinu og svo auðvitað útlendingastefnunni (Forseti hringir.) í víðari skilningi, að vera ekki að draga að okkur þennan vanda sem er augljóslega orðinn okkur ofviða.