157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[11:45]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Það er mikið fagnaðarefni að sjá þetta mikilvæga mál komið til síðari umræðu með ítarlegu nefndaráliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Ég vil fá að þakka nefndinni sérstaklega fyrir afar vel og vandlega unnin störf við að skýra það sem skýra þurfti, fylgja þessu úr hlaði með samningsmarkmiðum og í raun leiða í jörð mikið af því sem hefur verið í umræðunni og vakið hefur spurningar því það er auðvitað mikilvægt að nýta hina þinglegu meðferð einmitt til þess.

Kjarni málsins er að þjóðin fái að ráða ferðinni um næstu skref varðandi aðildarviðræður. Ég hafði reyndar borið þá von í brjósti að það myndi nást breið og góð samstaða, ekki bara hér í þingsal heldur meðal þjóðarinnar, um það skref að segja já við því að halda áfram aðildarviðræðum við ESB og síðan eftir atvikum takast á um hvort ganga ætti í sambandið á grundvelli skýrs samnings. Svo virðist ekki ætla að vera en það kemur enn þá meira á óvart að verið sé að takast á um það hvort yfirhöfuð eigi að ráðast í þessa atkvæðagreiðslu. Fremstir þar í flokki eru meira að segja stjórnmálamenn sem sóru og sárt við lögðu þegar þeir fóru með forystu í ríkisstjórn og settu í stjórnarsáttmálann árið 2013 að það ætti að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um næstu skref í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið. Það var svikið. Austurvöllur fylltist og stjórnin féll. Þetta lýðræðissár erum við að græða með því að samþykkja að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hvet þingmenn, hvort sem þeir eru í miklum samskiptum við fólk sem býr ekki í okkar samfélagi en hefur áhuga á pólitík, að reyna að útskýra það fyrir útlendingum hvernig geti staðið á því að það sé umdeilt að greiða atkvæði um og segja já í þessu skrefi. Það er nefnilega ekki svo auðvelt að útskýra það vegna þess að það er ekkert hættulegt við að klára viðræðurnar og sjá samning og bera hann síðan aftur undir þjóðina eins og gert er ráð fyrir.

Ég er líka búinn að fara yfir nefndarálit 1., 2. og 3. minni hluta utanríkismálanefndar í þessu máli og af því að þetta er utanríkismálanefnd þá kemur mér mjög á óvart að þar sé ekki vikið einu orði að breyttum heimi. Á því rúma ári sem ég hef átt sæti á þingi hef ég í gegnum alþjóðasamskipti en líka bara með því að fylgjast með fréttum, eins og meira eða minna allir Íslendingar gera, ekki getað látið fram hjá mér fara að heimurinn er mjög breyttur. Alþjóðalög eru í uppnámi, alþjóðasamningar og alþjóðastofnanir. Það er búið að leggja 15% toll á Ísland af hálfu okkar helsta bandalagsríkis í gegnum árin, Bandaríkjanna, og við erum sannarlega ekki ein í því. Tollum var meira að segja hótað þegar Bandaríkjaforseti gerði tilkall til þess að eignast Grænland sem er hluti af konungsríkinu Danmörku sem er eitt traustasta bandalagsríki Bandaríkjanna í NATO. Heimurinn er svo sannarlega breyttur. Við þurfum að taka þessar breytingar inn í umræðu um ekki bara hagsmuni Íslands í núinu heldur til framtíðar. Hafi þingmenn, ekki bara stjórnar heldur líka stjórnarandstöðu, ekki enn þá lesið grein Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, fyrrverandi þingmanns og utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem var að láta af störfum hér á þinginu, í Viðskiptablaðinu sem heitir „Efnahagslegar landvarnir“ þá ættu þeir að gera það vegna þess að við hljótum öll að þurfa og eiga að standa vörð um hagsmuni Íslands, hagsmuni blómlegs atvinnulífs og samkeppnishæfni landsins líka í þessum róstursama heimi sem einkennist af óvissu. Jens Stoltenberg, fyrrverandi framkvæmdastjóri NATO og núverandi fjármálaráðherra Noregs, hefur sagt að þó að það hafi að mörgu leyti verið frábær skilyrði fyrir minni ríki í alþjóðakerfinu undanfarna áratugi að vera utan tollabandalaga vegna þess að leiðangur heimsins var í átt að lægri tollum, auknu viðskiptafrelsi og bættum markaðsaðgangi meira eða minna fyrir alla, þá er það bara ekki núna. Þess vegna eru miklar umræður, m.a. í Noregi af hálfu atvinnurekendasamtaka, um það hvernig þessi breytti heimur kallar á umræður um aukið samstarf, nánari Evrópusamvinnu og tollabandalag. Meira að segja Kanada hefur rætt það hvort einhvers konar samflot eða tollabandalag við Evrópu sé ráðið. Og hvers vegna? Jú, vegna þess að Bandaríkin settu ofurtolla á sitt helsta viðskiptaland og bandalagsríki, Kanada, á síðasta ári.

Við þurfum að taka þennan breytta heim inn í umræðuna um stöðu Íslands í dag en líka hvernig heimurinn er að þróast og gæti þróast. Eins og í almannavörnum nægir ekki að búa okkur undir það sem getur verið líklegasta sviðsmyndin eins og sú að allt falli í ljúfa löð. Við verðum líka af ábyrgð að búa okkur undir það sem gæti gerst jafnvel þó að það sé minna líklegt ef það er eitthvað sem hefur alvarlegar og jafnvel óafturkræfar afleiðingar á hagsmuni okkar. Grænlandsmálið er ekki búið eins og þingmenn hafa væntanlega lesið um í fréttum í dag og í gær. Við búum í breyttum heimi, tökum það inn í umræðuna.

Efnahagslegur stöðugleiki, vextir og verðbólga ættu auðvitað að vera eitt lykilatriðið sem þingmenn — sem margir hafa komið að stjórn landsmála á undanförnum árum og síðustu áratugum, þar sem meðalverðbólga er 5% og meðalstýrivextir eru 7,5%, miklu hærri en í nágrannalöndunum, ekki bara hærri verðbólga, ekki bara hærri vextir heldur hærra bil á milli stýrivaxta og verðbólgunnar vegna þess að saga krónunnar er slík að Seðlabankinn þarf að beita beittari meðulum til þess að ná verðbólgunni niður. Því miður er þetta þannig. Fyrr á þessum þingfundi hafði ég orð á því að á Íslandi búum við núna efnahagslega í tveimur löndum, evrulandi og krónulandi. Stóru útflutningsfyrirtækin okkar, hvert sem litið er, ferðaþjónustufyrirtæki eins og Icelandair, en líka sjávarútvegsfyrirtækin okkar og fleiri, gera upp í erlendri mynt, taka lán í erlendri mynt og eru í allt annarri samningsstöðu, t.d. í uppkaupum á öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum eða óskyldum atvinnufyrirtækjum við lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru föst í krónunni.

Hjarta mitt slær með heimilunum sem eru sannarlega hluti af krónulandi, greiða 100 milljarða á ári í hærri vexti vegna krónuálagsins á meðan lönd sem standa ekki sterkari en við efnahagslega og hafa gengið í Evrópusambandið og tekið upp evruna hafa náð stjórn á verðbólgunni og vöxtunum á leiðinni þangað inn með bakstuðningi Seðlabanka Evrópu sem bjóða núna, eða bankarnir öllu heldur og lánastofnanir, fólkinu sem þar er að festa kaup á húsnæði eða endurfjármagna eldri lán miklu betri vaxtakjör. Það munar 5% eða meira. Þá myndum við losna við verðtrygginguna. Þá myndum við fá fyrirsjáanleika. Þá myndum við vita hvað við þyrftum að borga af láninu okkar eftir 20 ár en það er erfiðara að spá um það heldur en náttúruhamfarir og veður í krónulandinu, því miður. Þetta er ekki bara veruleikinn núna, hann hefur verið svona síðustu 100 ár eða síðan við aftengdum okkur dönsku krónunni árið 1930 og krónan féll á einum degi um 30%. En það er önnur saga. Efnahagslegur stöðugleiki á ytri aðstæður, ekki bara fyrir þá stóru, valdamiklu og ríku sem geta jafnvel nýtt sér þessa aðstöðu. Við eigum að hafa í huga stöðu hinna, heimilanna, lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem eru hluti af þessu efnahagslega umhverfi og eru að gera sitt besta. Mörg gera býsna vel og má bara ímynda sér lítil ferðaþjónustufyrirtæki, hvað margt væri auðveldara ef þau gætu gert áætlanir eins og tvö ár fram í tímann þegar þau eru að gefa upp verð til sinna viðskiptavina. Hvert einasta litla ferðaþjónustufyrirtæki þarf að vera með einhvers konar greiningar- og spádeild um það hvar gjaldmiðillinn verður staddur eftir tvö ár.

Út frá hagsmunum íslensks atvinnulífs, sem að sumu leyti er með sérstöðu, við erum land og eyja norðar og frá öðrum að ýmsu leyti, þá hefur alveg sérstakt gildi fyrir okkur að vera við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar. Við hefðum sannarlega átt að vera það þegar orkumálin voru rædd, sannarlega átt að vera við borðið þegar loftslagsmálin voru rædd m.a. út frá flugi. Hvað ætli hafi farið margir klukkutímar margs fólks í að reyna að gæta hagsmuna Íslands eftir á í því? Hversu áhugavert væri ekki að láta reyna á þessi mál í aðildarviðræðum við Evrópusambandið? Ætli það sé ekki betri strategía heldur en hitt að gera það undir merkjum Evrópska efnahagssvæðisins, EES-samningsins — sem er þó fagnaðarefni að allir hér í þingsalnum styðja þótt því hafi farið víðs fjarri á sínum tíma.

Viðræður eru leið til að fá skýra mynd og niðurstöðu í mikilvægum málum sem snerta atvinnulíf, hagsmuni heimilanna og hagsmuni Íslands núna og til framtíðar. Það er gríðarlegur ábyrgðarhluti að loka þessum dyrum. Það er gríðarlegur ábyrgðarhluti að hvetja fólk ekki til þess að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni og láta á samninga reyna. Stjórnvöld munu fara með skýr markmið inn í þessar viðræður ef niðurstaðan verður já. Nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar ber það skýrt með sér. Þetta eru mikilvæg mál líka fyrir greinar sem við tölum stundum um eins og þær myndu ekki hafa hag af því að við gengjum í ESB. Tökum bara dæmi úr sjávarútveginum — og þetta er ekki eitthvað sem ég er að kokka upp heldur er einn helsti yfirmaður Brims, sem er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, nýbúinn að vera í löngu viðtali í hlaðvarpi sem heitir Evrópustraumar þar sem farið er skipulega yfir þessi mál. Hann heitir Hjálmar Vilhjálmsson og sagði að merkilegt nokk myndi aðgengi íslenskra sjávarafurða stórbatna ef við gengjum í ESB. Hvers vegna er það? Það eru tveir þættir aðallega. Annars vegar tekur við hærra tollaþrep núna ef sjávarafurðir eru fluttar frá Íslandi fullunnar. Þess vegna eru þær að mjög stórum hluta fluttar út ekki fullunnar heldur hálfunnar til þess að fá ekki á sig þessa hærri tolla. En það sem meira er og mikilvægara er að á einum af okkar mikilvægasta markaði, Bretlandi, tókst Evrópusambandinu að semja um betra aðgengi fyrir sjávarútvegsafurðir en okkur tókst eftir Brexit. Okkur tókst ekki að semja vel fyrir íslenskan sjávarútveg við Bretland eftir Brexit, þvert á það sem fólk hafði talið. Mig minnir að þáverandi utanríkisráðherra hafi talað um tækifærin í Brexit sem reyndist nú ekki vera. Nú er staðan sú, að sögn talsmanna sjávarútvegsins, að ef við færum inn í Evrópusambandið þá myndi okkur bjóðast betri markaðsaðgangur fyrir íslenskar sjávarútvegsafurðir á einum mikilvægasta útflutningsmarkaði okkar sem er Bretland.

Við þurfum að ræða Brexit. Þegar við erum í einhvers konar óljósri umræðu um hvaða áhrif full aðild myndi hafa á samkeppnishæfni atvinnulífs og samfélagsins er Brexit einfaldlega gott dæmi. Raddir sem töluðu fyrir Brexit reyndust hafa rangt fyrir sér í öllum meginatriðum. Það ber öllum saman um það, öllum óháðum greiningaraðilum varðandi efnahagsmál og breskum almenningi, 60% bresks almennings vilja núna fara aftur inn í ESB. Stór meiri hluti telur að Brexit hafi verið mistök og við sjáum í skoðanakönnunum almennings, fólksins á götunni í Evrópusambandslöndunum, að stuðningur við aðild að Evrópusambandinu hefur aldrei verið hærri en akkúrat núna, yfir 60% og yfir 70% og fer hækkandi líka í löndum þar sem aðild var samþykkt með naumindum eins og í Svíþjóð. Bara í síðustu viku sáum við skoðanakönnun þaðan þar sem stuðningurinn hækkaði úr 62% í 67%. Talið þið bara við venjulegt fólk, ekki tala bara við grimma hagsmunaaðila sem vilja ekki að fólkið fái að sjá skýran samning á Íslandi.

Vonbrigði mín í þessari umræðu hér hafa nefnilega verið sú að í staðinn fyrir að þingið og þjóðin hafi staðið saman um að segja já í fyrri atkvæðagreiðslunni þá er margt sem bendir til þess að þeir sem græða á núverandi stöðu, þeir sem geta tekið lán í evrum og keypt upp fyrirtæki sem geta það ekki, þessi öfl eru núna í gegnum fjölmiðla sína og áhrif að beita sér — hvernig? Harkalega gegn því að þjóðin segi já. Þeir eru í vörn fyrir fákeppnislandið Ísland, þeir eru í vörn fyrir fámennisvald keyptra áhrifa í gegnum aðgang að sameiginlegri auðlind þjóðarinnar og hagstæð lán, m.a. í evru. Þetta er gömul saga og ný þegar við höfum hrint úr vör umbótum í þessu landi. Svona var þetta nákvæmlega þegar gjaldeyrishöftin voru afnumin af viðreisnarstjórninni. Þeir sem voru í aðstöðu og kunnu á kerfið voru býsna efins um það. Svona voru raddirnar líka þegar gengið var í EFTA og iðnaðurinn hafði áhyggjur af því að tollafrelsi fyrir iðnað yrði okkur til ills. Það reyndist alls ekki vera. Svona voru líka ræðurnar haldnar hér gegn EES-samningnum um það að fiskimiðin myndu fyllast af evrópskum bátum og við myndum missa fullveldi og sjálfstæði. Við höfum tekið upp 75% af allri löggjöf Evrópusambandsins. Sjálfstæði okkar er sterkara en áður vegna EES. Allir flokkar á Alþingi styðja það og meginþorri almennings. En samt heyrast núna sömu gömlu ræðurnar en bara í þetta skipti gegn því að við fáum fullt sjálfstæði, fullt fullveldi og sæti við borðið eins og við höfum í NATO, eins og við höfum í samstarfi við aðrar þjóðir eins og Eystrasaltsríkin hafa og eru sterkari eftir, eins og Svíþjóð, Danmörk og Finnland hafa og eru sterkari eftir. Bretland er veikara enda gengu þau út. En við eigum að fá samning. Við eigum að segja já og Alþingi á að klára þetta með sóma og færa þjóðinni valdið í nafni almannahagsmuna, ekki sérhagsmuna.