157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:06]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna sem var uppfull af rangfærslum. Hvað menn ganga langt í að gæta sinna eigin sérhagsmuna er með slíkum ólíkindum. Það er alveg ljóst að það eru tveir hópar sem munu græða á því að ganga í ríkjabandalag ESB: stjórnmálamenn og embættismenn. Gott og vel. Ef hv. þingmenn ætla að tala fyrir því er lágmark að þeir fari svona örlítið rétt með. Við tökum ekki 75% af lögum og reglugerðum Evrópusambandsins. Það er enginn fótur fyrir því. Það eru fullkomin ósannindi. Ég spyr hv. þingmann, sem er í flokki sem samanstendur af flokkum sem börðust gegn EES, sem börðust gegn EFTA, sem börðust gegn NATO, Samfylkingin kemur frá þeim flokkum: Af hverju eigum við núna að fara inn út af breyttum heimi? Samfylkingin hefur alltaf viljað ganga í Evrópusambandið, alltaf, alveg sama hvernig heimurinn er. Hv. þingmaður talar um að það sé svo gott að vera í tollabandalaginu ESB sem hefur brotið á okkur EES-samninginn. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því þegar þeir hafa tækifæri til þess því að við höfum engin áhrif þarna sem heitið getur, sex þingmenn af 755? (Forseti hringir.) Evrópusambandið reyndi að brjóta á okkur í Icesave. Við gátum varist af því að við erum fyrir utan. Hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af því? Og ég spyr: Ætlar hv. þingmaður að fara í gegnum þessa umræðu með botnlausar rangfærslur eins og hann gerði í þessari ræðu?

(Forseti (BHar): Forseti minnir á að ræðutíminn er eingöngu ein mínúta þegar fjórir hafa óskað eftir andsvari.)