þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Þá vitum við það. Það skiptir auðvitað engu máli hvernig heimurinn er, Samfylkingin vill alltaf ganga inn í Evrópusambandið þannig að við getum bara hætt að ræða þann þátt. Og frábært, hv. þingmaður finnur háskólamenntaðan einstakling, ESB-sinna, sem skrökvar því — skrökvar því að við tökum 75% af regluverkinu í gegnum EES, því að það eru hrein og klár ósannindi. EFTA-skrifstofan gefur þetta út á hverju ári og í síðustu skýrslu sem var gefin út af utanríkisnefnd voru þetta 13,5%. Ef maður flettir því upp núna: 16,5%, ekki 75%. Ég spyr hv. þingmann, af því að nú hann talar um fyrirsjáanleika— það verður að vera fyrirsjáanleiki fyrir litlu fyrirtækin. Já, er það? Já. Bíddu, þetta er varaformaður fjárlaganefndar sem breytti rekstrarumhverfi bílaleiga og lítilla fyrirtækja á einni nóttu í desember með kílómetragjaldi sem þeir gátu ekki gert neinar ráðstafanir gagnvart. Og það voru ekki bara bílaleigurnar. (Forseti hringir.) Ef hv. þingmaður er svona fylgjandi fyrirsjáanleika, af hverju gengur ríkisstjórnin þá svona fram? Og ef hv. þingmaður hefur í alvöru áhyggjur af vöxtum og verðbólgu, af hverju er fjármálaáætlun þá eins og hún er? Eigum við að fara yfir hvernig fjármálaráð er búið að grilla hana? (Forseti hringir.) Eigum við að ræða það? Ef hv. þingmaður er að hugsa (Forseti hringir.) um eitthvað annað (Forseti hringir.) heldur en stjórnmálamenn og embættismenn, (Forseti hringir.) ef hann er að hugsa um eitthvað annað, ef hann er að hugsa um litlu fyrirtækin, almenning, af hverju gengur ríkisstjórnin þá svona fram? (Forseti hringir.) Af hverju voru fjárlögin (Forseti hringir.) samþykkt með þessum skatta- og gjaldahækkunum? Og af hverju er fjármálaáætlun eins og hún er? (Forseti hringir.) Því að það mun þýða hækkun á vöxtum og verðbólgu fyrir almenning. (Forseti hringir.) En þið, ef við komumst inn í Evrópusambandið, þið verðið í góðum málum.
(Forseti (BHar): Forseti minnir enn og aftur á tímamörkin. Þau eru einungis ein mínúta þegar fjórir eru í andsvörum.)