þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég átta mig á því að þingmaðurinn er í nauðvörn og finnur ekki rökin gegn því að aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru myndi vera farsælasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti, enda er þetta margreynd leið. En það er mjög lágt lagst að atyrða hér fjarstaddan mann sem er prófessor í lögum fyrir þá rökstuddu afstöðu hans að við séum búin að taka upp 75% af löggjöf Evrópusambandsins. Það er bara enginn bragur á því og ég skora á þingmanninn að draga þau orð sín til baka. Hagsmunir heimilanna eru það sem við eigum að vera að horfa á, 100 milljarðar í aukinn vaxtakostnað á ári, 1.000 milljarðar á tíu árum, 2.000 milljarðar á 20 árum. Þetta eru almannahagsmunirnir sem eru undir í þessu máli, fyrir því að halda þessum dyrum opnum, fyrir það að leyfa þjóðinni að sjá hvaða samning við fáum og hvaða kjör bjóðast. Ekki bara kjörin fyrir þá sem eru í sérstakri aðstöðu, nei, ég er að tala um kjör almennings, venjulegs fólks.