þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hv. þm. Degi B. Eggertssyni er tíðrætt um að evran sé lausnin við háum vöxtum og verðbólgu en staðreyndin er sú að til að taka upp evru þarf fyrst að ná niður vöxtum og verðbólgu. Spurningin er því sú hvað hefur helst drifið verðbólguna áfram hér á landi undanfarin ár. Svarið er augljóst: Mikill húsnæðisskortur sem hefur keyrt fasteignaverð upp. Þar vegur Reykjavík langþyngst vegna stærðar sinnar og ákvarðana borgaryfirvalda árum saman, lengst af undir stjórn hv. þingmanns, um allt of litla lóðaúthlutun og ofurþéttingu sem aldrei gat mætt eftirspurn. Það er þægilegt að kenna krónunni um þetta í pólitískum tilgangi og nota vandann sem rök fyrir ESB. En staðreyndin er einföld: Krónan úthlutar ekki byggingarlóðum. Það hefði meiri hluti Reykjavíkur hins vegar getað gert. Þá værum við líklega með lægri verðbólgu og lægri vexti en í dag. Hvernig væri að horfa í eigin barm?