157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:14]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hér er spurt hvað drífi verðbólguna og ég vísa til greininga peningastefnunefndar og umræðunnar. Verðbólguvæntingar drífa verðbólguna og það er saga krónunnar sem drífur verðbólguvæntingar. Um þetta eru fræðimenn og sérfræðingar býsna sammála. Núna hleðst t.d. upp óselt íbúðarhúsnæði mjög víða. Verðið á undanförnum árum hefur hækkað meira í klukkustundarakstursfjarlægð frá Reykjavík heldur en í Reykjavík sjálfri vegna þess að hér hefur verið byggt mjög mikið þó að Mogginn segi annað. Kjarni málsins er sá að Eystrasaltsríkin, Króatía og önnur ríki sem hafa gengið í ESB og tekið upp evruna hafa fengið bakstuðning Seðlabanka Evrópu sem hefur trúverðugleika, ólíkt krónunni, til þess að lækka verðbólgu og vexti. Það mun duga okkur líka vel almenningi til heilla. Annað er bara tilraun til þess að reyna að afvegaleiða umræðuna.