157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:15]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Það kemur mér satt að segja ekki á óvart að hv. þm. Dagur B. Eggertsson vilji ekkert kannast við ábyrgð sína í þessu máli eins og svo mörgum öðrum. Hitt hefði komið á óvart. Staðreyndirnar liggja fyrir. Húsnæðisskortur hefur verið einn helsti drifkraftur verðbólgunnar undanfarin ár og það hefur komið fram aftur og aftur í hagtölum, greiningum og umræðunni allri. Við vitum líka hvernig staðið var að húsnæðismálum í Reykjavík árum saman undir stjórn hv. þingmanns, of fáar byggingarlóðir, ofurtrú á þéttingu sem aldrei gat mætt eftirspurn. Krónan úthlutar ekki byggingarlóðum. Það gera stjórnvöld. Meira að segja oddviti Samfylkingarinnar í síðustu borgarstjórnarkosningum sagðist ekki vilja verja það hvernig hefði verið staðið að málum í borginni. Verðbólgan var farin niður á síðasta ári, einkum vegna fjárlaga síðustu ríkisstjórnar, en tók síðan aftur kipp upp á við í byrjun þessa árs, m.a. vegna skattahækkana núverandi ríkisstjórnar. Þetta segja einfaldlega opinberar hagtölur.