þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta annað andsvar. Utanríkismálanefnd á þakkir skildar fyrir að biðja Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um svör við ýmsum spurningum, m.a. um vexti á evrusvæðinu og vexti á Íslandi. Vaxtamunurinn blasir við í svörunum og er um 5% á venjulegum heimilum á venjulegum húsnæðislánum. Þess vegna geta heimilin sparað sér 100 milljarða á ári, sem gæti verið um 1 milljón á hverja fjölskyldu í landinu, þær skulda mismikið, við erum að tala í meðaltölum hér. Einhver mesta kjarabót sem hægt er að hugsa sér og hér eyða þingmenn Sjálfstæðisflokksins tíma sínum í ræðustól Alþingis í útúrsnúninga og einhvern pólitískan skotgrafahernað þegar komið er að kjarna málsins, að vaxtastig á Íslandi er mara á íslenskum heimilum, er mara á litlum og meðalstórum fyrirtækjum (Forseti hringir.) og hér er áhugaverð leið sem hefur reynst öðrum löndum vel og við hljótum að verða að skoða.