157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:20]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þetta andsvar og fagna yfirlýsingu þingmannsins varðandi atkvæðagreiðsluna í ágústlok. Ef ég skil spurninguna rétt þá ætla ég bara að segja að ég deili mjög áhyggjum þingmannsins af verðmyndun á sjávarafla og hrökk við, þótt ég hefði verið við ýmsu búinn, þegar það komu svör varðandi loðnuna um daginn. Ég held, eins og felst í spurningu þingmannsins, að þetta sé almennara vandamál. Ég veit ekki allt um færeysku leiðina en þó það að þar fari alla vega um 30%, ef ég man rétt, í gegnum einhvers konar fiskmarkaði þannig að það myndist óumflýjanlega markaðsverð. Mér finnst þetta bara mjög áhugaverð leið, hvort hún sé sú eina rétta er ég til í að setjast yfir og ganga í þetta mál með þingmanninum vegna þess að þarna eru heilmiklir almannahagsmunir undir og líka kjör sjómanna. Það er hið augljósa. Hafnargjöldin eru það líka og veiðigjöldin eru það sannarlega í þriðja lagi.