157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:23]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta síðara andsvar og taka undir með þingmanninum að það er að ýmsu að hyggja í sjávarútvegsmálunum. Sumt er skynsamlegt að klára bara vegna þess að það er skynsamlegt að klára það. Annað getur verið að skipti máli upp á komandi viðræður. Það þarf bara að setjast yfir þetta. Eitt af því sem er í núverandi löggjöf sem þingmaðurinn nefnir er að erlendir aðilar mega eiga minni hluta í íslenskum sjávarútvegi upp að 25%, ef ég man þetta rétt, og 49 ef það eru fleiri en einn aðili. Það virðist ekki hafa verið mikill áhugi á því. Sumir rekja það til hás kvótaverðs og aftur vísa ég til frábærs hlaðvarps þar sem Hjálmar Vilhjálmsson tjáir sig um þetta. Hann sagðist ekkert vera hræddur við slík ákvæði. En þetta er allt undir og ég held að margir þurfi að koma að því að móta samningsafstöðu Íslands. Sjálfsagt er ýmis heimavinna sem við þurfum að vinna í leiðinni og þá gerum við það. Ef þjóðin kemur með okkur þá komum við með henni í þetta.