þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Hæstv. forsætisráðherra sagði hér í umræðum í þinginu að ef samningurinn yrði ekki góður fyrir landið þá myndi hún einfaldlega hafna honum og ekki bera hann undir þjóðina. Þetta er vissulega svolítið sérstakt við að eiga vegna þess að það er alveg á hreinu að ef við segjum já í ágúst og hér fer fram seinni atkvæðagreiðsla þá munu ekki allir vera sammála um hvað sé góður samningur og hvað ekki. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort honum finnist eðlilegt að það eigi að vera hæstv. forsætisráðherra landsins sem hafi ein það vald að ákveða hvort samningur verði borinn undir þjóðina. Ég velti því líka fyrir mér, ef það verður ný ríkisstjórn og nýr forsætisráðherra, á það sama við? Ef það verður forsætisráðherra til að mynda úr röðum Miðflokksins sem á að meta þann samning? Er það eðlilegt eða er það bara eðlilegt þegar hv. þingmaður og hæstv. ráðherra, Kristrún Frostadóttir, á að ákveða hvaða samningur er þóknanlegur?