157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:26]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þetta andsvar. Ég man eftir þessum orðaskiptum og öðrum svipuðum. Það sem mér finnst jákvætt við þau er að þau draga fram að þetta eru tveir áfangar. Við erum annars vegar að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort við ætlum að halda áfram viðræðunum og hins vegar þegar þeim viðræðum lýkur þá er orðið og endanleg ákvörðun aftur hjá þjóðinni. Auðvitað þarf einhver að skrifa undir samninginn til að segja að nú sé hann fullgerður og nú megi bera hann undir þjóðina og það er forsætisráðherra landsins. Mér finnst það bara mjög eðlilegt að forsætisráðherra geri það, hver sem það er á hverjum tíma. Þetta eru tvær ákvarðanir og mér fyndist ekki eðlilegt að fara í seinni þjóðaratkvæðagreiðsluna um hálfkláraðan samning eða eitthvað slíkt heldur einmitt að það sé gengið frá endanlegum samningi með undirritun forsætisráðherra sem þá situr og síðan hafi þjóðin síðasta orðið og öll pólitíkin bundin af því. Er það ekki hv. þingmaður? Yrði pólitíkin ekki bundin af jái í haust að klára samningsgerðina og bundin af niðurstöðunni í síðari atkvæðagreiðslunni, sama hvort einstökum þingmönnum eða stjórnmálamönnum sé hún að skapi?