157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:29]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka síðara andsvarið. Bara til að botna þetta með undirskriftina. Það að skrifa ekki undir er í raun til merkis um að viðkomandi telji samningum ekki lokið og að það þurfi að ná betri niðurstöðu varðandi einhver einstök atriði. Svo þegar því er lokið þá er skrifað undir og samningurinn borinn undir þjóðina. Ég sé ekki alveg hvert vandamálið er, það er bara gott að finna fyrir metnaði forsætisráðherra til að ná góðum samningi sem hún með stolti myndi leggja undir þjóðina. Ég treysti forsætisráðherra vel til að gera það.

Varðandi samkeppnishæfni Evrópu, hagvaxtartölur á mann, framleiðni o.s.frv. þá vil ég bara benda á skrif Nóbelsverðlaunahagfræðingsins Pauls Krugman sem hefur fjallað um þetta í nokkrum greinum vegna þess að honum finnst alls konar bábilja í samanburði þar við önnur lönd. Við höfum verið að bera okkur saman t.d. við Bandaríkin. Þar hefur verið meiri hagvöxtur en hann hefur farið til örfárra. Hann hefur farið til örfárra á meðan meginþorri fólks í Bandaríkjunum býr við krappari kjör. Það er fyrsta kynslóð Bandaríkjamanna núna sem býr við síðri kjör heldur en foreldrar þeirra. (Forseti hringir.) Þessa mynd má mála með fleiri en einum pensli, í fleiri en einum lit og frá fleiri en einu sjónarhorni og ég er mjög til í að taka þá umræðu.