157. löggjafarþing — 108. fundur, 21. maí 2026.
þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
516. mál
Virðulegi forseti. Þessi umræða hefur verið nokkuð góð og málefnaleg hingað til. Hins vegar kom hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson í andsvar við hv. þm. Dag B. Eggertsson og kallaði háskólamann hér, fjarstaddan úti í bæ, sagði að hann væri Evrópusinni sem skrökvar. Forseti gerði vissulega athugasemdir við það að þingmenn færu fram yfir ræðutíma, en ég spyr einfaldlega: Hyggst forseti gera athugasemdir við það þegar þingmenn vega hér að æru og starfsheiðri fjarstadds fólks?