þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég ætla hér að koma og taka undir með hv. þm. Pawel Bartoszek, formanni utanríkismálanefndar, vegna þess að mér finnst það ekki boðlegt að vega að starfsheiðri fjarstadds prófessors, Gunnars Þórs Péturssonar, helsta sérfræðings okkar í Evrópurétti, sem hefur einfaldlega fært fyrir því skýr rök að í EES-samningnum felist 75% af löggjöf Evrópusambandsins. Þær tölur sem þingmaðurinn nefnir fjalla um allar gerðir Evrópusambandsins, m.a. stjórnsýsluákvarðanir og minni háttar hluti. Hér er verið að tala um hvaða lög eru tekin upp á Íslandi. Að vera svo firrtur og hatrammur í umræðunni að maður sé tilbúinn að vega að heiðri fjarstadds fólks hér úr pontu Alþingis er ekki Alþingi til sóma, ekki þingmanninum til sóma og ekki málstað hans til framdráttar.