þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það að hv. þingmenn geti ekki staðið betur á bak við sitt mál heldur en svo að þurfa að fela sig á bak við mann úti í bæ segir nú allt um á hversu slæman stað menn eru komnir þegar þeir reyna að ræða þessi mál. Ég hvet hv. þingmenn — og ég vek athygli á því að hv. þingmaður kemur og segir okkur frá því að það sé einn maður, örugglega mætur maður, sem sé hæfasti, ekki einn hæfasti heldur hæfasti þjóðréttarfræðingurinn, hvernig stenst sú fullyrðing? Og síðan þegar er bent á að það sé ekkert á bak við þetta, það séu aðrar tölur sem hafi komið fram hvað eftir annað, um þetta var fjallað sérstaklega í skýrslu sem var gefin út af utanríkisráðuneytinu, þá reyna menn að snúa þessu upp í það að það sé svo slæmt að það sé verið að vega að æru einhvers manns. (Forseti hringir.) Ef ég hef gert eitthvað sem gerir það að verkum að viðkomandi fræðimanni hafi sárnað þá þykir mér það mjög miður og vil biðjast velvirðingar á því. (Forseti hringir.) En þetta snýst ekki um það. Þetta snýst um það að hér eru hv. þingmenn rökþrota og reyna að fela sig á bak við fólk úti í bæ.