157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:35]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Mér finnst nauðsynlegt að koma því á framfæri í tilefni þessara orðaskipta að það er gríðarlega mikilvægt þegar við förum inn í þessa umræðu og þegar kynningarefni mun fara af stað hér í sumar að það verði ekki bara talað við háskólann, það verði talað við atvinnulífið líka. Að það verði talað við þá sem þetta hefur áhrif á hér um allt land vegna þess að það er alveg rétt sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson segir, innganga í Evrópusambandið er fyrst og fremst sérhagsmunir fyrir hið opinbera, fyrir kerfið, kerfi sem vill stækka. Það er bara þannig. Kerfið er aldrei nógu stórt og er auðvitað alltaf að stækka. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að ansi margir sem munu kjósa hér já við inngöngu í Evrópusambandið, ef við munum gera það, sé fólk sem vill sjálft fá bita af þessu kerfi. Við sem erum hér að reyna að berjast fyrir allt fólk í landinu, fyrir atvinnulífið, viljum auðvitað að atvinnulífið hafi meiri rödd.