157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:38]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (ber af sér sakir):

Virðulegi forseti. Svo það sé bara alveg skýrt, ef ég hef gert eitthvað til að vega að æru einhvers manns úti í bæ þá biðst ég velvirðingar á því. Eftir stendur að menn verða að koma með tölur. Og þetta ríkisstyrkjahjal hv. þm. Pawels Bartoszeks stenst enga skoðun. Hv. þingmaður veit mætavel að EFTA-skrifstofan gefur út á hverju ári hvert hlutfall gerða Evrópusambandsins er sem tekið er inn í EES. Hv. þingmaður veit það og hann getur ekki reynt að gera lítið úr því. Reyndar er þessi 75% tala komin úr skýrslu sem Norðmenn gerðu og það voru engar tölur á bak við það, en það var sagt að þegar allt væri tekið saman, Schengen-samstarf Norðmanna og Evrópusambandsins, þá væri þetta örugglega svona tveir þriðju. Það er það sem er á bak við þetta. Aðrar heimildir hafa ekki fundist. (Forseti hringir.) En höfum það alveg á hreinu, ég hef engan áhuga á því að vega að einum eða neinum fyrir utan þennan þingsal. En ég fer fram á það að hv. þingmenn stjórnarliðsins færi rök (Forseti hringir.) fyrir máli sínu og komi með staðreyndir á borðið.