þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil bara taka undir að það hryggir mig að hér hafi ekki verið beðist velvirðingar. Það sem kristallast í þessari umræðu er að þingmaðurinn kann ekki að gera greinarmun á Evrópulöggjöf annars vegar og Evrópugerðum hins vegar. Lagaprófessorinn var að fara yfir löggjöfina og hvaða hlutfall hennar væri hluti af EES-samningnum og það mat hann að væri 75%. Gerðir geta verið bara ákvarðanir og ég held að misskilningurinn liggi í þessu. Ég hvet þingmanninn enn og aftur til að biðja þennan mann, sem er utan þings og getur ekki varið hendur sínar hér, afsökunar á því að halda því fram að hann sé að skrökva vegna þess að hann sé Evrópusinni. Það er bara mjög ósmekklegt og alvarlegt því að misskilningurinn liggur hjá þingmanninum en ekki fjarstöddum lagaprófessor.