157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:41]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég missti reyndar af upphafi þessara umræðna hvað þetta varðar og get því kannski ekki alveg tjáð mig um það. Ég vil nefna að það er skynsamlegt fyrir okkur öll hér að gæta hófs í orðavali og auðvitað að reyna að haga hlutunum þannig að við komum þeim frá okkur án þess að vera að vega að æru manna eða jafnvel heilla starfsgreina. Ég vil minna menn á það að í umræðunni um veiðigjöld féllu ansi hörð orð í þessum þingsal og þeir geta tekið það til sín þeir þingmenn sem eiga. Þeir eru m.a. hér í salnum. Það er rétt að við reynum að gæta hófs í orðavali en við skulum ekki vera skinheilög í þessari umræðu.