157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:42]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með félögum mínum í stjórnarmeirihlutanum varðandi það að hér er fólk sem á ekki sæti á Alþingi en því hafa verið gerðar upp, ekki bara stjórnmálaskoðanir heldur hafa þeir líka verið ásakaðir um óvandvirkni og einhvers konar uppspuna í sínum útgefnu verkum. Við ættum að forðast það. Ég vil þó líka taka undir með hv. þm. Ólafi Adolfssyni, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, um að við þurfum að vanda okkur í umræðunni. Ég tek það til mín og veit svo sem ekki hvort ég hafi stigið út af línunni þar. En það væri til heilla fyrir þessa umræðu hér um þetta mikilvæga mál að við byrjuðum á því að hætta að ásaka hvert annað um einhverja yfirgripsmikla vanþekkingu á þessu máli því að þetta er ekki keppni í því að vita hvað mest um Evrópusambandið. Fólk á rétt á sinni skoðun í þessu samfélagi og inni í þessum þingsal þó að það sé ekki djúpt inni í þeim fræðum. (Forseti hringir.) En það eru fleiri hér inni en ákveðnir þingmenn sem hafa sitt lítið af hverju í vasanum varðandi Evrópusambandið. Ég hvet hæstv. forseta til dáða.