þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrirspurnina. Nú er ég ekki með viðtalið fyrir framan mig en það var ekki hægt að lesa annað út úr orðum hæstv. ráðherra en að hún væri að vísa til þess — þarna kom í rauninni ákveðnari yfirlýsing frá hæstv. ráðherra en hingað til hefur komið fram, og er þá væntanlega ekki í nefndarálitinu, um að ef við myndum fara inn og myndum fá skjól af því að fara í varnarsamstarf með Evrópuríkjum og Evrópuríkin myndu efla varnir sínar; og hvað felst annað í því? Við getum flett því nákvæmlega upp hvort hún nefndi Evrópuher en það lá í orðanna hljóðan og a.m.k. upplifði ég viðtalið þannig og þetta var að mínu mati sterkari yfirlýsing í þessa átt. Þetta kom allt í einu í gær þegar málið var komið á dagskrá og umræðan byrjuð en þá kemur þessi yfirlýsing og áhersla á að Ísland þurfi skjól gagnvart mótaðilum. Í þessu felst að Bandaríkin séu ekki lengur reiðubúin að bera kostnaðinn af vörnum Evrópu og hvað er það annað en að á endanum — þótt það taki mörg ár, það mun taka mörg ár og áratugi að stofna slíkan Evrópuher ef til kemur en það liggur einhvern veginn í þessari orðanna hljóðan að Evrópusambandið eigi að sjá um sínar varnir sjálft. Þess vegna nefndi ég að þetta væri yfirlýsing, þetta væri ákveðin áhersla sem væri lögð fram í Morgunblaðinu í gær eftir að málið var komið til umræðu hér í þingsal. (Forseti hringir.) Það er rétt hjá hv. þingmanni að það er kannski öðruvísi komið inn á þetta í nefndarálitinu. En þetta fannst mér vera yfirlýsing sem var dálítið afgerandi og (Forseti hringir.) varnir til framtíðar í Evrópu, ekki eftir nokkra mánuði eða örfá misseri heldur í framtíðinni, eru ekkert annað en Evrópuher.