157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:11]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en ég vil samt vekja athygli á því að vera okkar í NATO hefur ekki leitt til þess að við séum gengin í Bandaríkjaher og aukið samstarf við Evrópusambandið á sviði öryggis- og varnarmála er nú þegar í bígerð og felur ekki í sér djúpstæðan ágreining hér í þessum þingsal.

Ég vil hvetja hv. þingmann Sjálfstæðisflokksins til að tala um þessi mál af ábyrgð í samræmi við stefnu þess flokks sem hún er hluti af. Ég sé ekki að hér sé verið að teikna upp aðild Íslands að Evrópuher. Það er ekki í kortunum að stofna slíkan her þótt einhverjir hafi viðrað þá sýn sína. Það er ekki í kortunum. Það er ábyrgðarhluti að tala um þetta.

Hv. þingmaður minnist líka á Draghi-skýrsluna í sinni ræðu. Ég þekki svo sem ekki svör við ályktun hennar um löggjafar- og framkvæmdarvald Evrópusambandsins en ef samkeppnishæfni Evrópusambandsins er á niðurleið, á hrakhólum, hvernig tekur það þá ekki líka til Íslands sem aðila að Evrópska efnahagssvæðinu? Er það vegna þess að við erum ekki í sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni og landbúnaðarstefnunni og hluti af evrusvæðinu að við verðum ekki fyrir áhrifum (Forseti hringir.) af minnkandi samkeppnishæfni Evrópusambandsins og þeim ráðstöfunum sem verið er að gera til að auka hana?