þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Takk fyrir andsvarið. Það er einmitt það sem þetta gengur að miklu leyti út á, við teljum að okkur sé betur borgið einmitt fjárhagslega og efnahagslega verandi með samninga við aðra og getandi gert frekari samninga við aðrar ríkjaheildir heldur en að fara þarna inn þar sem atvinnuleysi er mun hærra en á Íslandi og víðar. Atvinnuleysi ungs fólks, sérstaklega í Evrópusambandinu, er gríðarlega hátt. Það er mikil miðstýring í Evrópusambandinu. Það er mikið regluverk og reglugerðarfargan og slíkt og ég held að það myndi ekki bæta fjárhagslega stöðu fyrirtækja eða annarra í landinu að fara þarna inn og þetta snýst um það. Þetta snýst um að við erum, eins og maður segir, að gera ágætismót sjálf. Við erum og fáum að vera í friði með okkar auðlindir, sjávarútveg og landbúnað og sérstaklega, og vonandi í meiri mæli, alls kyns nýsköpun, fáum að vera í friði eins og við höfum verið hingað til (Forseti hringir.) og eins og nágrannaþjóðirnar okkar sem hafa valið að fara þá leið. Þetta snýst bara um að það er ekki búið að leggja á borð fyrir þá sem vilja ekki þarna inn staðreyndir eða rök fyrir því að okkur væri betur borgið þarna inni, bara alls ekki.