þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Hér í síðustu orðaskiptum var farið inn á hvað væri ábyrgðarhluti og ég ætla að skipta aðeins um skoðun á því hvað ég ætla að spyrja hv. þingmann um. Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir ræddi ábyrgðarhluta og hvernig við veljum orð okkar í því samhengi. Mér finnst einmitt mikill ábyrgðarhluti sá blekkingarleikur sem þessi ríkisstjórn fer fram með. Það er ábyrgðarhluti að hætta því. Við getum öll skilið það að fólk hafi mismunandi skoðanir á því að vilja ganga í Evrópusambandið eða ekki. Samfylkingin hefur alltaf viljað ganga í Evrópusambandið en núna — það að treysta ekki þjóðinni heldur þurfa að blekkja þjóðina með þessum hætti er náttúrlega óforskammað. Í því samhengi vil ég tala um varanlegar undanþágur. Hér er talað eins og við séum að fara í einhverjar samningaviðræður þar sem við getum valið hvað við viljum og hvað við viljum ekki. Augljóslega er það ekki þannig enda myndu hin 27 ríkin fljótt fara upp á afturfæturna ef við fengjum eitthvað sem þau fengju ekki. Engu að síður er þessu haldið fram. Mig langar í þessu samhengi líka að benda á að ekkert ríki hefur fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Hæstv. utanríkisráðherra segir það og leggur áherslu á að Ísland haldi fullum yfirráðum yfir auðlindum sínum. Hún vildi ekki staðfesta það í gær að hún legði áherslu á að þetta færi inn í frumréttinn, hún sneri út úr og svaraði ekki hv. þm. Sigríði Ásthildi Andersen. Því spyr ég hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur: Eru þetta eitthvað annað en blekkingar?