þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Já, það er spurning um orðaval. Ég var frekar hófstillt í minni ræðu, ég var bara að fara yfir efnislega þætti sem leiða mig og a.m.k. helming þjóðarinnar til þeirrar niðurstöðu að það sé ekki vænlegur kostur að fara þarna inn. Okkur getur greint á um framsetningu á rökum annarra, hvernig hún er, en ég byrjaði einmitt mína ræðu áðan á því að segja það og ítreka að fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla er náttúrlega ekkert um annað en aðildarviðræður og við getum kallað það blekkingar að vera að reyna að segja eitthvað annað. Það er alveg hægt að taka undir það. Ég get alveg tekið undir það að það er verið að reyna að fara mjúkum orðum um þetta einhvern veginn og setja í aðra mynd en þetta raunverulega er því að það er ekkert til, eins og þingmaðurinn nefndi og ég kom inn á líka — það er ekki við því að búast og hefur ekki verið þannig að það séu einhverjir sérsamningar eins og um sjávarútvegsstefnuna og slíkt. Við þurfum bara að hafa það á hreinu. Það má alveg segja að það séu blekkingar að halda öðru fram því pakkinn sem á að kíkja í, sem sífellt er verið að tala um að eigi að kíkja í og að sé svo gott að kíkja í, er opinn. Hann er galopinn, við vitum hvað er þar. Það er alveg hægt að taka undir að hér sé um einhverjar blekkingar að ræða. Það er alla vega verið að setja málið í þann búning að hægt er að gera alvarlegar athugasemdir við það því þetta liggur allt fyrir, við vitum hvað er í pakkanum, við vitum hvernig aðrir hafa farið í gegnum umsóknir og inngöngu og við vitum hvernig farið hefur verið með Breta eftir að þeir fóru út. (Forseti hringir.) Það er nú ekkert lítið sem hefur gengið á þar og áhrifin sem af því hafa orðið.