157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:19]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Já, það eru ákveðnir lykilþættir sem hv. þingmenn meiri hlutans skauta algjörlega fram hjá, það er alla vega vægt til orða tekið, en þannig er það ef það eru ekki blekkingar. Ég var hins vegar að lesa grein í Financial Times og megininntakið í þeirri grein, greinargerð eftir Valentinu Romei, er hvernig Evrópusambandið er að dragast hratt aftur úr Bandaríkjunum og Kína, þá sérstaklega í nýsköpun, rannsóknum og tæknilegri samkeppnishæfni. Vandamálið er ekki síst að vandinn er að versna. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er það ekki óábyrgt að við förum að festa komandi kynslóðir inni í Evrópusambandinu, unga fólkið okkar, þegar það liggur fyrir að Evrópusambandið er að dragast aftur úr? Á tímum þegar gervigreindin er á fljúgandi ferð þá er Evrópusambandið enn að hugsa um hvernig það eigi að reglugerðavæða allt. Er það ekki óábyrgt gagnvart komandi kynslóðum?