þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hún vék í svari sínu örstutt að hlut sem ég reyndar spurði ekkert út í en er áhugavert að nefna í þessu samhengi og kann ég forseta bestu þakkir fyrir að gefa mér tvær mínútur til að spyrja að því, því ég held að við séum þrjú í andsvörum og ég eigi því líklega bara eina. Hv. þingmaður nefndi flutningskostnaðinn og það er einmitt líka ein afurð regluverks frá Evrópusambandinu, ETS-fyrirbærið allt saman. Baráttan gegn því verður vonlaus, gangi þetta ferli eftir. En mig langar í þessu samhengi að spyrja hv. þingmann, í framhaldi af fyrri spurningunni um hvað skuli þá semja í ljósi þeirra yfirlýsinga sem ég vitnaði hér til áðan frá stækkunarstjóra Evrópusambandsins: Hver eru markmiðin? Hvar eru þessar varanlegu undanþágur? Nú er ég ekki að tala um sérlausnir eða tímabundna aðlögun eða tímabundnar lausnir. Ég er að tala um varanlega aðlögun að stofnsáttmála Evrópusambandsins. Hvar eru dæmi um þessar undanþágur? Og um hvað skal þá semja og hvert er þá umboðið sem stjórnvöld eru að óska eftir frá þjóðinni — til að semja um hvað?