157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:52]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða ræðu. Hv. þingmaður fór hér ágætlega yfir þróun samkeppnishæfni Evrópu og hvernig ríki og svæði eins og Indland eru á fleygiferð. Það vill nú svo til að við höfum fríverslunarsamning við Kína og Indland og svo erum við auðvitað aðilar að EES. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann hvort hún hafi áhyggjur af því að aðild Íslands að Evrópusambandinu kynni að hafa neikvæð áhrif á okkur á þessum umbrotatímum varðandi þessi tækifæri sem eru að skapast, eins og hún fór ágætlega yfir í ræðu sinni, og þá neikvæð áhrif á samskipti okkar og tækifæri hvað varðar önnur ríki.