157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[13:53]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Já, ég hef verulegar áhyggjur af því. Allar tölur sýna að Evrópusambandið er að dragast aftur úr. Þegar við getum ekki sjálf gert okkar eigin fríverslunarsamninga við önnur lönd er mikið tekið af okkur og sérstaklega þegar taka á af okkur samninga við lönd sem eru á fleygiferð. Í þessu samhengi má benda á að hlutur Evrópusambandsins þegar kemur að alþjóðlegri nýsköpun er að minnka og nýsköpun er það sem við þurfum inn í framtíðina. Hann er að minnka á meðan Bandaríkin, Asía og fleiri svæði eru öll að fjárfesta í nýrri tækni í nýsköpun og taka þátt í að fara inn í framtíðina. Því miður er Evrópusambandið ekki þar og því hef ég áhyggjur af þessu.