157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

kostnaður vegna rannsóknar á seinkun á umhverfismati Sundabrautar.

[10:32]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Mig langar til að eiga hér orðastað við hæstv. innviðaráðherra vegna Sundabrautar. Nýlega voru sagðar fréttir af því að mikil seinkun hafi orðið á umhverfismati Sundabrautar. Það var ekki annað séð af fréttum en að hæstv. innviðaráðherra kæmi algerlega af fjöllum og sagði hann slíkar tafir fáheyrðar. Hæstv. ráðherra var svo mikið niðri fyrir að hann ákvað að fela lögmannsstofu að rannsaka hvernig stæði á þessari seinkun. Umræddar tafir eru hins vegar ekki jafn fáheyrðar vendingar og ákvörðun ráðherra um að fela einkaaðila að rannsaka hvers vegna opinber aðili vinnur svona hægt, sem heyrir, nota bene, undir samráðherra og samflokksmann hans. Ef til vill hefði verið fljótlegra og ódýrara að spyrja hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra af hverju HMS væri svona lengi að þessu. Því vil ég gjarnan spyrja hæstv. innviðaráðherra: Hver er áætlaður kostnaður ráðherrans við þessa rannsókn á seinagangi HMS og hvers vegna leitaði hann ekki upplýsinga um seinaganginn frá samráðherra sínum?