kostnaður vegna rannsóknar á seinkun á umhverfismati Sundabrautar.
Virðulegur forseti. Ég bara ítreka það að þessi úttekt er gerð á undirstofnun minni, þ.e. úttekt á verklagi Vegagerðarinnar, ekki HMS. Þetta beinist að verklagi sem lýtur að umhverfismati eða umhverfisskýrslu sem Vegagerðin gerði. Vissulega kemur HMS að því verki sem stjórnvald. Þetta á við um fleiri aðila sem framkvæma umhverfismat á Íslandi og áætlanagerð á Íslandi. Það er atriði sem þarf að skoða enn þá nánar, ég held að allir séu sammála um það.
Varðandi Sundabraut þá er gert ráð fyrir því að hún verði greidd með veggjöldum og við stefnum að því að þetta fari í innviðafélag. Það hefur komið til greina að hafa þetta með öðrum hætti en það er eðlilegt að við séum að horfa til innviðafélags, sem yrði þá sérfélag, sjálfstætt félag, þar sem veggjöld eiga að standa undir framkvæmdum. Við stefnum ótrauð á það að þessi stóra framkvæmd verði greidd með veggjöldum. Ég vona að þetta svari spurningunni. Það er þá eðlilegt að þetta fari inn í innviðafélag. (Forseti hringir.) Ég tek sem dæmi að Spölur var sjálfstætt innviðafélag á sínum tíma sem gerði jarðgöngin og við erum að horfa til þeirrar framkvæmdar líka. Vonandi verður það svo með sem flestar samgöngubætur, (Forseti hringir.) sérstaklega á Hvítár-Hvítársvæðinu, jarðgöng og brýr. Þær eiga heima í innviðafélagi.