samningsmarkmið Íslands í orkumálum í aðildarviðræðum um ESB.
Virðulegi forseti. Í ljósi þess að við erum að ræða hér þingsályktunartillögu um aðildarviðræður við Evrópusambandið þessa dagana á þinginu þá langar mig að fá álit hæstv. umhverfisráðherra á sjónarmiðum sem fram komu í nefndaráliti meiri hlutans í utanríkismálanefnd, sem hefur verið lagt fram í þessu máli, en þar er einmitt fjallað um samningsmarkmið Íslands í viðræðum við Evrópusambandið. Þar kemur fram að:
„Meiri hlutinn leggur áherslu á að þegar kemur að löggjöf ESB á sviði loftslags- og orkumála verði sérstakur gaumur gefinn að sérstöðu Íslands vegna þess hve stór hluti orkunotkunar byggist á endurnýjanlegum orkugjöfum.“ — Undir þetta tek ég heils hugar — „Meiri hlutinn leggur þannig áherslu á að tekið verði tillit til hagsmuna Íslands og sérstöðu landsins, m.a. er mikilvægt að tryggja að ETS-kerfið hafi ekki neikvæð áhrif á tíðni flugsamgangna til og frá Íslandi.“
Ég er sammála þessu. Það liggur hins vegar fyrir að ETS-kerfið hefur haft áhrif á tíðni samgangna til og frá Íslandi og hefur haft það í för með sér að flugfélag hér hefur orðið gjaldþrota, m.a. vegna þungra byrða sem þetta kerfi hefur lagt á íslensk fyrirtæki og íslenskan almenning. Í þessu ljósi vil ég spyrja hæstv. umhverfisráðherra: Með hvaða hætti ætlar hann að tryggja það að áður en farið verður í þessar aðildarviðræður — álpist þjóðin til þess að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslu og komi til þessara aðildarviðræðna — að það liggi fyrir fyrir fram hver samningsmarkmið Íslands eru í þessum efnum? Mun hann beita sér fyrir því að þau samningsmarkmið verði kynnt þjóðinni áður en til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur en ekki eftir hana þannig að íslenskur almenningur geti áttað sig á því hvar línan er dregin í sandinn í þessum efnum? Sérstaklega í ljósi þess að í samningsramma ESB frá árinu 2010 kemur fram, í 25. gr., að öll ákvæði EES-samningsins sem víkja frá regluverki ESB munu ekki geta talist fordæmisgefandi í aðildarviðræðum.