157. löggjafarþing — 109. fundur,  22. maí 2026.

samningsmarkmið Íslands í orkumálum í aðildarviðræðum um ESB.

[10:43]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Eins og ég nefndi hér þá hefur Evrópusambandið sjálft lýst því yfir í samningsramma sínum og samningsmarkmiðum sínum sem liggja fyrir frá árinu 2010 að við aðildarviðræður muni þær sérlausnir sem Ísland kann að hafa fengið í gegnum EES-samninginn ekki hafa neina þýðingu og þær muni falla niður og þær muni ekki einu sinni hafa fordæmi fyrir það sem koma skyldi í aðildarviðræðum. Í því ljósi endurtek ég spurninguna, hvort hæstv. ráðherra telji ekki þörf á því og hvort hann muni beita sér fyrir því að áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram liggi fyrir skýr samningsmarkmið að þessu leyti.

Ég vil líka spyrja hann um löggjöf sem lýtur að samfélagslosun, svokallaða ESR, sem ekki hefur verið felld undir gildissvið EES og fellur raunar utan gildissviðs EES. Ráðherra hefur hins vegar kynnt upptöku á því kerfi allt að einu. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja ráðherrann: Telur hann líklegt að við náum þessum markmiðum sem ráðherrann hefur sett Ísland inn í, þ.e. um 50–55% samdrátt í losun eins og kynnt var í samráðsgáttinni í vetur? (Forseti hringir.) Hver yrði kostnaður Íslands við þetta kerfi, sérstaklega ef við náum ekki þessum markmiðum? Hæstv. ráðherra hlýtur að hafa svör við þessu á reiðum höndum.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að í seinni umferð óundirbúinna fyrirspurna er ræðutíminn ein mínúta.)