samningsmarkmið Íslands í orkumálum í aðildarviðræðum um ESB.
Virðulegur forseti. Nú væri auðvitað gott að hafa meira en eina mínútu, en það er víst ekki þannig. Varðandi ESR þá er það auðvitað þannig að Ísland undirgekkst þær skuldbindingar á þarsíðasta kjörtímabili og ég man ekki betur en að sá hv. þingmaður sem spyr um þetta hafi einmitt verið framsögumaður málsins í utanríkismálanefnd þegar Ísland undirgekkst þær skuldbindingar, ESR. (Gripið fram í.) En allt að einu þá voru þær samþykktar í þessum þingsal, m.a. af þingmönnum Miðflokksins, þessar hræðilegu skuldbindingar. Þannig var það nú bara. Varðandi kostnaðinn þá veltur það á því hversu miklum samdrætti í losun við náum, hversu mjög okkur tekst að lágmarka þann kostnað sem ellegar gæti lent á ríkinu.
En rétt að lokum vil ég bara vara við þessari nálgun stjórnarandstöðunnar hér, að fara í einhverja gríðarlega uppgjöf fyrir fram gagnvart Evrópusambandinu. Erum við ekki stolt þjóð? Viljum við ekki bera höfuðið hátt í mögulegum samningaviðræðum? Hvers vegna að gefa sér það fyrir fram (Forseti hringir.) að Ísland komist hvorki lönd né strönd í mögulegum samningaviðræðum við Evrópusambandið, sérstaklega þegar það liggur fyrir, og hæstv. forsætisráðherra hefur verið algerlega skýr með það, að við munum ekki einu sinni leggja fram samning fyrir þjóðina ef okkur líst ekki á hann. Við erum ekki að fara í aðra þjóðaratkvæðagreiðslu með vonlausan samning við Evrópusambandið sem stjórnarflokkarnir standa ekki með.