Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Reykjavíkurflugvöllur.
Virðulegur forseti. Frumvarp um heilbrigðiseftirlit er einmitt komið út af svona málum eins og hér er til umræðu. Það var misræmi í framkvæmd, misræmi í leyfum, starfsleyfum fyrir flugvelli í landinu og annars konar framkvæmd. Þess vegna er verið að miðstýra þessum málum, þ.e. það er lagt til í frumvarpinu. Þetta mál fær bara sinn farsæla endi, að það verði bara gefið út rekstrarleyfi í framtíðinni. Ég tel að þessi gullhúðun eigi ekki heima í íslenskum lögum og ég tel að þetta frumvarp sem er núna í þinginu frá hæstv. umhverfisráðherra tali algerlega inn í þetta mál. Varðandi stjórnsýslu heilbrigðiseftirlitsins og borgarinnar í þessu máli þá mun þetta bara vonandi heyra sögunni til. Við skulum sjá hvernig þetta verður. En við höfum þegar átt í erfiðleikum út af flugvellinum, rekstrarskilyrðum hans, út af trjágróðri og öðru slíku og ég vona að það muni heyra sögunni til í framtíðinni. Ég tel að það sé mikilvægt mál að taka á þessari gullhúðun og að regluverk varðandi flugið verði einfaldað vegna þess að það er gríðarlega mikilvægt að flugvellir í landinu séu samkeppnishæfir alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Keflavíkurflugvöllur verður að vera það og það sama á við um aðra mikilvæga millilandaflugvelli í landinu.